ÞAÐ ER MÁNUÐUR Í MÓT!!!!

Halló allir, þá er bara rét mánuður í stóra Reykjaskóla PARTÍIÐ!!!

Við sem að þessu stöndum verðum að fara fram á að þið (öll) sem ætlið að mæta, greiðið staðfestingargjald upp á krónur 2.000 kr. sem greiðist í síðasta lagi miðvikudaginn 31. maí n.k. Þetta er aðalega til þess að kokkurinn geti eldað mat nokkurn veginn í réttu hlutfalliu við fjölda þeirra er mæta á svæðið!!

Vinsamlegast leggið inn á eftir farandi reikning:
Banki: 1150
H 26
Reikningsn. 11518
kt.: 221257 7079

og taka fram nafn og vegna RSK

Ég í Karl staðarhaldara og hann sagði að með þessu áframhaldi yrðu öll herbergi upppöntuð þessa helgi, allavega á laugardeginum en flestir sem eru búnir að panta eru að bóka sig föstudag og laugardag...semsagt á þriðja tug herbergja pöntuð og mánuður í mót!!!! Þetta sýnist mér vera heldur meiri stemmning heldur en er búin að nást í Þýskalandi vegna heimsmeistarakeppninar í knattspyrnu.!!

Eins og þið sem hafið farið inn á heimasíðuna http://rskparty2006.blog.is/blog/rskparty2006/ hafið séð að þá er að myndast stemming í kringum sundmót sem allt stefnir í að verði haldið á laugardeginum, keppt verður í opnum flokki og eru þegar komnir þrír keppendur, það er sundlaugarstjóri þeirra Sauðarkræklinga, Guðmundur Jensson, Hilmar Hreinson sem nýlega vann til fjölda verðlauna á öldungamóti Sundsambandssins og Inga Hafstað sem hefur stundað sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu af miklum móð til margra ára. Það verður spennandi að sjá hverjir fleiri mæta til leiks á sundmótinu, það skal tekið fram að fólk má synda með hvaða aðferð sem er og með hvaða hjálpartæki sem vill.

Karl staðarhaldari bað mig að láta það koma fram að þeir sem hyggjast koma með hjólhýsi, fellihýsi eða annað í þeim dúr láti sig vita þannig að hann geti leitt út rafmagn og slíkt til að auka fólki þægindin.

Endilega látið fólk sem var með ykkur hvort sem var árin tvö á undan eða eftir vita af þessu, reynum að blása til heljarinar teitis og fá sem flesta, ekki það að við séum eitthvað hrædd um að þið mætið eitthvað illa, alls ekki, það kom þessi beiðni frá fólki sem var ekki akkúrat þetta ár en langar til að koma og skemmta sér með okkur. Og við segjum bara, það eru allir velkomnir!!

Ekki meira í bili en meira bráðum, nú fara fyrst að koma póstar út af þessu híllumhæi og endilega skrifið í gestabókina þegar þið farið inn á síðuna eða látiðmig vita ef þið getið ekki skrifað..svo vantar fleiri myndir!!!!
Koma svo allir saman nú!!!! Upp með stuðið, allir drífa sig að koma barnabörnunum í pössun og .....hey hvernig er það er ekki einhver sem kann línudans og væri til i að vera með hraðnámskeið á föstudagskveldinu!! Eða á laugardeginum.

Allir koma með einhverjar hugmyndir af því hvað hægt er að gera þessa helgi, alveg sama hversu vitlaus hugmyndin er þá verður hún notuð!!!.....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heil og sæl - er búin að reyna nokkrum sinnum skrifa í gestabókina en ekkert gengur - hringdi í MBL og þeir vita ekkert hvað er að svo nú er bara að prófa hér og það skal takast. Mikið í húfi sé nefnilega að Dóri hefur eindaga á staðfestingargjaldinu og er það afmælisdagurinn minn - hvet ykkur til að borga sem fyrst svo hann kaupi nú einu sinni almennilega afmælisgjöf - búin að fá nóg af einhverjum teiknuðum myndum eftir hann sjálfan - ójbarasta. Hlakka til að sjá ykkur - OG KOMA SVO. kv.Gulla

Guðlaug Jónasdóttir (IP-tala skráð) 11.5.2006 kl. 13:42

2 identicon

JIBBÍ ÞAÐ TÓKST - RÓSA OG BEGGA AFHVERJU ERU ÞIÐ EKKI BÚNAR AÐ SKIRFA Í GESTABÓKINA - ÉG VAR BÚIN AÐ SKÓRA Á YKKUR -. Lendið máski í sama vandamáli og ég að ekkert gerist þegar þið skráið ykkur - þá bara prófa aftur og nota " athugasemdir" á hefst það. Rósa mín hvað eru margar bornar ? kv.Gulla

Guðlaug Jónasd (IP-tala skráð) 11.5.2006 kl. 13:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband