Færsluflokkur: Bloggar
19. dagar í gleðina
22.5.2006 | 11:27
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við fórum norður
17.5.2006 | 21:47
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Myndir frá hittingnum 1994 og fundur
14.5.2006 | 17:40
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
ÞAÐ ER MÁNUÐUR Í MÓT!!!!
11.5.2006 | 12:41
Halló allir, þá er bara rét mánuður í stóra Reykjaskóla PARTÍIÐ!!!
Við sem að þessu stöndum verðum að fara fram á að þið (öll) sem ætlið að mæta, greiðið staðfestingargjald upp á krónur 2.000 kr. sem greiðist í síðasta lagi miðvikudaginn 31. maí n.k. Þetta er aðalega til þess að kokkurinn geti eldað mat nokkurn veginn í réttu hlutfalliu við fjölda þeirra er mæta á svæðið!!
Vinsamlegast leggið inn á eftir farandi reikning:
Banki: 1150
H 26
Reikningsn. 11518
kt.: 221257 7079
og taka fram nafn og vegna RSK
Ég í Karl staðarhaldara og hann sagði að með þessu áframhaldi yrðu öll herbergi upppöntuð þessa helgi, allavega á laugardeginum en flestir sem eru búnir að panta eru að bóka sig föstudag og laugardag...semsagt á þriðja tug herbergja pöntuð og mánuður í mót!!!! Þetta sýnist mér vera heldur meiri stemmning heldur en er búin að nást í Þýskalandi vegna heimsmeistarakeppninar í knattspyrnu.!!
Eins og þið sem hafið farið inn á heimasíðuna http://rskparty2006.blog.is/blog/rskparty2006/ hafið séð að þá er að myndast stemming í kringum sundmót sem allt stefnir í að verði haldið á laugardeginum, keppt verður í opnum flokki og eru þegar komnir þrír keppendur, það er sundlaugarstjóri þeirra Sauðarkræklinga, Guðmundur Jensson, Hilmar Hreinson sem nýlega vann til fjölda verðlauna á öldungamóti Sundsambandssins og Inga Hafstað sem hefur stundað sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu af miklum móð til margra ára. Það verður spennandi að sjá hverjir fleiri mæta til leiks á sundmótinu, það skal tekið fram að fólk má synda með hvaða aðferð sem er og með hvaða hjálpartæki sem vill.
Karl staðarhaldari bað mig að láta það koma fram að þeir sem hyggjast koma með hjólhýsi, fellihýsi eða annað í þeim dúr láti sig vita þannig að hann geti leitt út rafmagn og slíkt til að auka fólki þægindin.
Endilega látið fólk sem var með ykkur hvort sem var árin tvö á undan eða eftir vita af þessu, reynum að blása til heljarinar teitis og fá sem flesta, ekki það að við séum eitthvað hrædd um að þið mætið eitthvað illa, alls ekki, það kom þessi beiðni frá fólki sem var ekki akkúrat þetta ár en langar til að koma og skemmta sér með okkur. Og við segjum bara, það eru allir velkomnir!!
Ekki meira í bili en meira bráðum, nú fara fyrst að koma póstar út af þessu híllumhæi og endilega skrifið í gestabókina þegar þið farið inn á síðuna eða látiðmig vita ef þið getið ekki skrifað..svo vantar fleiri myndir!!!!
Koma svo allir saman nú!!!! Upp með stuðið, allir drífa sig að koma barnabörnunum í pössun og .....hey hvernig er það er ekki einhver sem kann línudans og væri til i að vera með hraðnámskeið á föstudagskveldinu!! Eða á laugardeginum.
Allir koma með einhverjar hugmyndir af því hvað hægt er að gera þessa helgi, alveg sama hversu vitlaus hugmyndin er þá verður hún notuð!!!.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Frábærar undirtektir!
5.5.2006 | 18:24
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eru ekki allir í gírnum ????
28.4.2006 | 23:41
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
ER þessi síða ekki að virka sem skildi??
26.4.2006 | 22:36
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Endilega látið vita af ykkur í gestabókinni!!!
25.4.2006 | 09:37
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Linkur á Myndasíðuna hennar Ásu Hildar, endilega kíkja þangað
25.4.2006 | 00:20
http://www.imagestation.com/album/pictures.html?id=2107024265&code=21776405&mode=invite&DCMP=isc-email-AlbumInviteE
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Drífa sig að panta herbergi!!!
23.4.2006 | 20:36
Þeir sem hafa hug á að panta herbergi ættu að drífa sig í því. Við sem að þessu stöndum erum búin að hafa samband við nánast alla skólafélaganna símleiðis undanfarnar vikur og fengið hreint ágæt viðbrögð, manni heyrist flestir vera á því að mæta sem á annað borð eru ekki með helgina þegar bókaða, svo er einhver slatti sem býr erlendis. Endilega ef þið hittið einhverja á förnum vegi eða vitið af einhverjum erlendis, látið þá vita.
Ef þið eigið einhverjar myndir sem þið getið skannað frá þessum árum getiði sent það á dori@tv.is....
Enginn endanleg dagskrá er komin, enda er þarna kannski meira verið að hittast og eiga saman skemmtilegar stundir eina helgi, vitanlega verður dansæfing með tilheyrandi diskóteki og freestyle vangadansi á laugardagskvöldið, að loknum snæðingi en hvað verður í matinn er ekki ákveðið - allavega verður það gott. Einhver vildi hafa öldungamót í knattspyrnu og er það mál enþá opið. Við höfum aðgang að öllu þessa helgi, sundlauginni, heitu pottunum, íþróttahúsinu og jú neim it bara!!!
Síðast þegar við hittumst (10-11. júní 1994) komu flestir á laugardegi og eigum við von á því líka núna en það má alveg minnast á það að þeir sem komu og voru líka á föstudeginum skemmtu sér líklega mest og best af öllum.
Ef einhver hefur hug á að troða upp með skemmtiatriði er það velkomið og auðvitað mæta allir sem kunna á hljóðfæri með hljóðfærið og skemmta sér og öllum hinum,minnir að síðast þegar við hittumst hafi það gefið góða raun.
Meira síðar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)